Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Við hjá Sólríki viljum að þú sért ánægð/ur með vörurnar þínar 🌞

Ef þú ert ekki alveg sátt/ur við kaupin, þá geturðu alltaf haft samband við okkur og við finnum lausn saman.

Skilafrestur

Samkvæmt íslenskum neytendalögum hefur þú 14 daga skilarétt frá þeim degi sem þú færð vöruna í hendur.

Til að nýta þér skilaréttinn þarf varan að vera:

  • Ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum

  • Með kvittun, skilamiða eða sönnun um kaup

Þú getur tilkynnt okkur um skil með því að senda tölvupóst á solriki1111@gmail.com og við leiðbeinum þér um næstu skref.

Endurgreiðslur

Þegar við höfum móttekið og yfirfarið vöruna, sendum við þér staðfestingu á móttöku og endurgreiðum kaupverðið innan 14 daga.

Endurgreiðsla fer fram á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé samið sérstaklega.

Lagersöluvörum & útsöluvörum fæst hvorki skipt né skilað og eru keyptar í því ástandi sem þær eru. 

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður við skil eða endursendingu fellur almennt á viðskiptavin, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða, þá greiðir Sólríki sendingarkostnaðinn.

Gölluð eða röng vara

Ef varan sem þú fékkst er gölluð, skemmd eða röng, vinsamlegast hafðu samband við okkur sem fyrst á solriki1111@gmail.com með mynd og lýsingu, og við leysum málið hratt og örugglega 💛